Einangruð spíral-hraðhurð og rúlluhurð fyrir útveggi og innri skil í iðnaði, frá Kavidoors á Spáni. Hér eru tvær gerðir sem báðar eru úr einangruðum einingum frekar en dúk: spíralhurð þar sem hraðinn skiptir mestu og rúlluhurð úr einangruðum lamellum sem nær yfir allt að 12,5 m breitt op.
Spíral-hraðhurð
Hurðarblaðið er úr ISO-einingum fylltum 40 mm PIR-einangrun. Einingarnar hanga á lamakeðju, ganga lóðrétt í brautunum og vefjast upp í spíral fyrir ofan opið. Hurðin getur staðið innanhúss eða í útvegg.
- Stærð: allt að 7.000 × 5.000 mm
- Hraði: opnar á allt að 2,5 m/s, lokar á allt að 1 m/s
- U-gildi: 0,80 W/m²K
- Vindflokkur: 3–4
- Ending: yfir 500.000 opnanir samkvæmt gagnablaði
- Karmur: anodíserað ál E6/EV1, getur verið lakkaður í RAL-lit
- Brautir: sjálfberandi galvanhúðaðar brautir með innbyggðri spíralfestingu
- Stýring: með tíðnibreyti og púlsgjafa
- Staðlar: EN 12453, EN 12445 og EN 13241-1
Aukabúnaður: hljóðeinangrun á brautum, álrammaeiningar með gleri í stað ISO-eininga, útgáfa án gormakerfis, hlíf yfir drifbúnað, blikkljós, segullykkja í gólfi og fjarstýring.
Einangruð rúlluhurð
Rúlluhurð úr einangruðum álprófílum, 77 × 19 mm, með þenjanlegum pólýúretan-kjarna. Hún tekur lítið pláss fyrir ofan opið og ekki þarf að festa neitt í loftið. Ef lamella skemmist er hægt að skipta um hana staka. Hurðin kemur í fjórum hlutum: mótor, brautir, kassi og forrúlluð hurð.
- Stærð: allt að 12.500 × 7.000 mm
- Vindflokkur: 2 upp í 12.500 mm breidd, 4 upp í 8.000 mm breidd
- Brautir: anodíserað ál með burstaþéttingu. Hjólin í brautunum eru með lágnúningsáferð
- Mótor: til hliðar á öxli, með fallvörn. Upprúllunartromla úr áli
- Endarofar: rafrænir, opnunar- og lokunarstaða forrituð við fót hurðar
- Lokun: haldið er inni hnappi á meðan hurðin lokast („dead man“), opnun er sjálfvirk
- Minnsta upprúllun: Ø 100 mm á minni hurðum, Ø 170 mm á stórum
Opnun: fjarstýring, togrofi eða innrauður skynjari í lofti, radar sem greinir á milli fólks og tækja, ljósnemahnappur, fingrafaralesari, talnaborð eða aðgangskort.
Aukabúnaður: sjálfvirk lokun, tíðnibreytir fyrir mjúka hröðun og hemlun, grind lökkuð í sama lit og lamellurnar og varaafl (UPS).
Sjá einnig hraðhurðir með dúk, iðnaðarhurðir (flekahurðir) og árekstrarvarnir fyrir hurðir.
Gagnablað: spíral-hraðhurð (PDF)
Gagnablað: einangruð rúlluhurð (PDF)
Báðar gerðir fást í flestum RAL-litum og eru smíðaðar eftir máli. Sendu okkur málin og við gerum tilboð: [email protected], sími 55-20000.
Fáðu verð og afhendingartíma
Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.