Hraðhurðir með dúk fyrir iðnað og vöruhús, frá Kavidoors á Spáni. Þær skipta upp vinnusvæðum þar sem umferð fólks, lyftara og vöru er mikil og hurðin þarf að opnast og lokast hratt. Hér eru fimm gerðir, allt frá einfaldri innihurð upp í staflanlega hurð fyrir stór op utanhúss. Allar uppfylla EN 13241-1 og fást í fjölda RAL-lita.
Fyrir kæli- og frystiklefa eru sérstakar gerðir með hitun og þykkari dúk, sjá hraðhurð fyrir kæli og frysti.
Einföld hraðhurð (KRIP)
Ódýrasta lausnin hjá Kavidoors, ætluð innandyra á milli rýma með hitastig frá 5 °C upp í 80 °C. Dúkurinn er ekki sjálfviðgerandi en fæst það sem aukabúnaður.
- Stærð: allt að 4 m breidd og 3,4 m hæð
- Dúkur: PVC-nylon, 1 mm og 900 g/m², með glugga
- Yfirstykki: anodíserað ál, festingar í vegg og gólf úr ryðfríu stáli, faldar lagnir
- Mótor: 3 × 400/230 V, 160 sn./mín., 1 m/s, IP65, endarofar með púlsgjafa
- Öryggi: ljósnemar í braut og neyðarhnappur inni og úti. Hægt að opna með handafli ef rafmagn fer
- Stýring: man stöðu sína eftir rafmagnsleysi, þarf ekki að stilla upp á nýtt
Aukalega fæst m.a. málmhlíf yfir mótor, allir íhlutir úr ryðfríu stáli, einfasa tenging með 1,2 m/s hraða, varaafl (UPS), blikkljós, lágt yfirstykki og prentaður dúkur með merki fyrirtækisins.
Sjálfviðgerandi hraðhurð (KRIA)
Ef ekið er á dúkinn losnar hann úr brautunum án skemmda og fer sjálfur aftur á sinn stað. Hurðin heldur áfram að virka og ekki þarf að kalla til viðgerðarmann. Fyrir rými í plúshita og við 0 °C.
- Stærð: ljósop allt að 4.600 mm
- Dúkur: fléttaður PVC-nylon, 1 mm og 950 g/m², brunaflokkur M2
- Yfirstykki: anodíserað ál eða ryðfrítt stál
- Mótor: 3 × 230/400 V, 0,5 hö, IP54. Allt að 1,2 m/s með tíðnibreyti
- Öryggi: ljósatjald innbyggt í brautina, þarf ekki öryggiskant
- Vindflokkur: 3 samkvæmt gagnablaði
Málsetning, ljósop undir 3.200 mm breidd: heildarbreidd = ljósop + 480 mm, heildarhæð = ljósophæð + 550 mm. Yfir 3.200 mm: heildarbreidd = ljósop + 410 mm, heildarhæð = ljósophæð + 630 mm. Frítt gegnumgangsop er ljósop − 40 mm.
Hraðhurð fyrir hreinrými
Sjálfviðgerandi rúlluhurð til að aðskilja „hrein“ og „óhrein“ svæði, til dæmis í lyfjaiðnaði og á rannsóknarstofum. Hægt er að tengja nokkrar hurðir saman í loftlás með forritanlegri stýringu.
- Staðall: hönnuð samkvæmt EN ISO 14644-1
- Yfirstykki: ryðfrítt stál með loftþéttum vasa og þéttilistum við vegg eða klefaeiningu
- Dúkur: PVC-nylon, 1 mm, brunaflokkur M2. Engar láréttar málmstyrkingar. Fæst líka einangraður, gegnsær, FDA-hvítur eða rafleiðandi (antistatic)
- Gólf: falin gólffesting, engar brautir á gólfi
- Mótor: 0,55 kW, 1,2 m/s, IP54
- Stýring: einfasa 230 V með tíðnibreyti, IP56, lokunartími stillanlegur 0–99 sek.
- Stærð: ljósop allt að 4.600 mm
Lárétt hraðhurð
Opnast til hliðar í stað þess að rúllast upp, annaðhvort eitt blað til annarrar hliðar eða tvö blöð frá miðju. Með tveimur blöðum er opið laust helmingi fyrr. Dúkurinn snertir varla gólfið og dropar falla ekki úr honum við opnun, sem skiptir máli í matvæla-, efna- og lyfjavinnslu. Má setja upp innanhúss og utan.
- Stærð: allt að 6.000 × 6.000 mm
- Hraði: opnar á allt að 3 m/s, lokar á 1 m/s
- Vindflokkur: 2
- Mótor: 3 × 380/400 V, 0,45 kW, rafrænir endarofar, uppfyllir DIN-EN 12453
- Stýring: DR2100 með tíðnibreyti og skjá, neyðarrofi og þrefaldur hnappur í stálkassa
- Öryggi: ljósatjald IP67 í braut, árekstrarvörn, blikkljós og neyðaropnun með handafli
Staflanleg hraðhurð
Fyrir stór op, innandyra og utan. Dúkurinn leggst saman í fellingar þegar hurðin opnast.
- Stærð: allt að 8.000 × 8.000 mm
- Vindflokkur: 2 sem staðalbúnaður, allt að 5 eftir pöntun
- Dúkur: pólýesterdúkur með PVC-húð, 900 g/m², tvær gluggaraðir, brunaflokkur M2. Fæst líka 35/40% gegnsær, FDA-hvítur, rafleiðandi eða einangraður
- Grind: galvanhúðað og lakkað stál, eða ryðfrítt AISI 304
- Mótor: þriggja fasa með fallvörn í gír, 1 m/s, uppfyllir DIN-EN 12453
- Öryggi: öryggiskantur að neðan, ljósnemar og gul-svört rönd neðst á dúk
- Neyðaropnun: sveif, en fæst með mótvægi eða keðju
Opnun
Allar gerðirnar geta opnast með hnappi, togrofa, segullykkju í gólfi, ljósnema, radar eða fjarstýringu.
Sjá einnig árekstrarvarnir fyrir hurðir, spíral-hraðhurð og einangraða rúlluhurð og iðnaðarhurðir (flekahurðir).
Gagnablað: einföld hraðhurð (PDF)
Gagnablað: sjálfviðgerandi hraðhurð (PDF)
Gagnablað: hraðhurð fyrir hreinrými (PDF)
Gagnablað: lárétt hraðhurð (PDF)
Gagnablað: staflanleg hraðhurð (PDF)
Hurðirnar eru smíðaðar eftir ljósopi. Sendu okkur málin og við gerum tilboð: [email protected], sími 55-20000.
Fáðu verð og afhendingartíma
Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.