Einangraðar iðnaðarhurðir (flekahurðir) fyrir hleðsludyr og hitastýrð rými, frá Kavidoors á Spáni. Hurðin opnast lóðrétt upp og flekarnir renna undir loftið, eða upp með veggnum ef brautin er lóðrétt. Hún tekur því lítið pláss og hægt er að koma henni fyrir þó rýmið sé þröngt.
Tæknilegar upplýsingar
- Flekar: tvöfalt galvanhúðað stál með 40 mm pólýúretan-einangrun, CFC-frírri, meðaleðlisþyngd 40 kg/m³. Staðalhæð fleka 500 og 610 mm
- Yfirborð: stucco-mynstur að innan og utan. Að utan má velja á milli 9 RAL-lita
- Þéttingar: EPDM-gúmmí efst og neðst á hverjum fleka
- Klemmuvörn: samskeyti fleka klemma ekki fingur, hvorki að innan né utan, samkvæmt EN 12604
- Lamir: flekarnir eru styrktir að innan þar sem hlið- og miðjulamir festast
- Jafnvægi: snúningsgormar með duftlökkun, víratromlur og hliðarvírar
- Öryggi: fallvörn ef gormur brotnar og önnur ef vír slitnar
- Brautir: galvanhúðað stál, en fást úr ryðfríu stáli eða hvítlakkaðar
- Styrkingar: tvöfaldar lamir og styrkingar á hurðum breiðari en 5 m
- Opnun: með togsnúru og handfangi, eða með mótor
- Staðall: EN 13241-1
Brautargerðir
Sex gerðir af brautum eru í boði: láréttar, lóðréttar, hallandi og hækkaðar. Hver hentar fer eftir lofthæð fyrir ofan opið, hæð hurðarinnar, hvaða farartæki fara um og hvort lagnir eða bitar eru í loftinu.
Aukabúnaður
- Gluggar
- Loftunarristar
- Gönguhurð í hurðinni
- Ljósnemar
- Fjarstýring og móttakari
- Neyðarstöðvun
Frá Kavidoors fást líka hraðhurðir með dúk, spíral-hraðhurð og einangruð rúlluhurð og árekstrarvarnir fyrir hurðir.
Gagnablað frá framleiðanda (PDF)
Við þurfum að vita breidd og hæð opsins, plássið fyrir ofan og til hliðanna, og hvað á að fara um dyrnar. Sendu okkur málin og við gerum tilboð: [email protected], sími 55-20000.
Fáðu verð og afhendingartíma
Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.