KGG – Kristján G. Gíslason ehf 55-20000
Vefverslunin okkar er tímabundið lokuð. Við tökum við pöntunum og fyrirspurnum í síma 55-20000 og á [email protected].
Forsíða › Hurðir fyrir kæli- og frystiklefa › ULO hurð fyrir stýrt andrúmsloft frá Infraca

ULO hurð fyrir stýrt andrúmsloft frá Infraca

ULO hurð fyrir stýrt andrúmsloft frá Infraca

ULO hurð frá Infraca á Spáni, rennihurð fyrir klefa með stýrðu andrúmslofti. Hún hentar sérstaklega í geymslu- og þroskunarklefa fyrir ávexti og grænmeti. Hurðin er mjög gasþétt og vel einangruð, og í hurðarblaðinu er gluggi svo hægt sé að fylgjast með þroskuninni án þess að opna.

Tæknilegar upplýsingar

  • Hámarks ljósop: 3 m breidd × 4 m hæð, önnur mál eftir fyrirspurn
  • Vottun: CE-merkt, vottuð samkvæmt UNE-EN 13241-1
  • Hurðarblað: 120 mm, leggst yfir karminn, með anodíseruðum álramma. Öll samskeyti eru þétt
  • Karmur: L-laga álprófíll með tvöföldu kuldabroti, sprautaður með PUR-froðu. Undirkarmur úr hvítlökkuðu áli fyrir samlokueiningar, karmur með festiklóm fyrir múrvegg
  • Þétting: tvöfaldur EPDM-þéttilisti. Hurðin sígur að karminum og fjórir excenter-lásar úr ryðfríu stáli AISI 304 þrýsta henni að. Þrýstinginn má stilla
  • Braut: sjálfberandi braut yfir karminum úr ryðfríu stáli og áli, einkaleyfisvarin hönnun Infraca. Auðvelt að komast að henni við uppsetningu og viðgerðir
  • Gluggi: 600 × 800 mm, Climalit® 6/20/6 gler, þéttur með þrýstihjólum
  • Stilling: nákvæm stilling á fjórum stöðum
  • Öryggi: sjálflýsandi grunnplata við innra handfang
  • Þröskuldur: karmur felldur í gólf svo lyftarar komist yfir, með sér hólfi fyrir hitastreng

Hurðin kemur forsamsett. Samkvæmt framleiðanda er viðhaldskostnaður mun minni en á hurðum með uppblásnum þéttilista.

Málsetning

  • Uppsetningarop: breidd = ljósop + 100 mm · hæð = ljósop + 50 mm
  • Karmhæð = ljósop + 50 mm
  • Brautarhlíf: lengd = 2 × ljósop + 440 mm · hæð = ljósop + 305 mm
  • Gróp í gólfi: breidd 280 mm, dýpt 60 mm, lengd = ljósop + 350 mm

Aukabúnaður

  • Brautarhlíf úr anodíseruðu áli
  • Sjálfvirk opnun

Fyrir hefðbundna kæli- og frystiklefa er rennihurð fyrir kæli eða frysti yfirleitt rétta lausnin.

Gagnablað frá framleiðanda (PDF)

Hurðin er smíðuð eftir ljósopi. Sendu okkur málin og við gerum tilboð: [email protected], sími 55-20000.

Fáðu verð og afhendingartíma

Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.