Handvirk rennihurð fyrir kæli- og frystiklefa frá Kavidoors á Spáni, í tveimur útfærslum: Tecnik og Industrial. Tecnik er fyrir kæli- og frystiklefa niður í -20 °C, til dæmis í verslunum, veitingarekstri, rannsóknarstofum og kjöt- og fiskvinnslu. Industrial ræður við stærri op og fer niður í -40 °C, sem dugar í frystigöng. Báðar eru CE-merktar.
Hurðarblaðið hangir á tvöfaldri braut með öryggiskerfi sem Kavidoors hefur fengið einkaleyfi á. Það kemur í veg fyrir að hurðin falli eða velti, jafnvel eftir þungt högg, og gerir erfitt að losa hana af brautinni hvort sem hún er á hreyfingu eða kyrr.
Tæknilegar upplýsingar
| Tecnik | Industrial | |
|---|---|---|
| Hitastig | +0 °C / -20 °C | +0 °C / -20 °C / -40 °C |
| Þykkt hurðarblaðs | 80 mm / 100 mm | Sprautað: 100 / 120 / 140 mm Úr einingum: 100 / 120 / 150 mm |
| Hámarks ljósop | 2,5 m breidd × 2,8 m hæð | 4 m breidd × 6 m hæð, mest 12 m² |
| Gerðir | KSCL (+0 °C), KSFL (-20 °C) | KSCV (+0 °C), KSFV (-20 °C), KSTV (-40 °C) |
- Karmur: sjálfberandi, 40 mm, úr L-laga álprófílum, 20 µm anodíseraður í silfurlit eða hvítlakkaður
- Kuldabrot: tvöfalt kuldabrot í karminum; undirkarmurinn lagar sig að þykkt veggeininganna
- Hurðarblað: leggst yfir karminn, með anodíseraðri álumgjörð og PUR-kjarna (40–45 kg/m³)
- Þétting: tvöfaldur PVC-þéttilisti úr tveimur harðleikum
- Braut: efri braut úr áli með PE-hjólum, neðri stýring með gólfsleða og þrýstisleða. Brautarhlífin er hönnuð til að auðvelt sé að þrífa hana
- Stilling: nákvæm stilling á fjórum stöðum
- Handföng: að innan og utan, innra handfangið með sjálflýsandi botni
- Frystiklefar: neðri stýringin er felld í gólfið svo vagnar og lyftarar fara yfir, með hólfi fyrir hitastreng (50 W/m á Tecnik)
- Kemur forsamsett, þarf enga aukagrind og hentar þar sem matvæli eru meðhöndluð
Í stærri Industrial-hurðum er hurðarblaðið sett saman úr sléttum samlokueiningum í stað þess að vera sprautað í heilu lagi, sem auðveldar flutning. Fyrir -20 °C og -40 °C fylgir styrking á karmi við gólf, og á KSTV einnig í hurðarblaði.
Klæðning og litir
Lakkað stál, ryðfrítt stál AISI 304/2B, PVC, FRP eða PET, og flestir RAL-litir.
Málsetning
Sömu viðmið gilda um Tecnik og Industrial:
- Karmur: breidd = ljósop + 260 mm · hæð = ljósop + 130 mm
- Hurðarblað: breidd = ljósop + 70 mm · hæð = ljósop + 5 mm
- Undirkarmur: breidd = ljósop + 190 mm · hæð = ljósop + 95 mm
- Hæð upp að braut = ljósop + 90 mm · heildarhæð = ljósop + 255 mm
- Heildarbreidd með rennibraut = 2 × ljósop + 410 mm
- Uppsetningarop: breidd = ljósop + 80 mm · hæð = ljósop + 40 mm
Aukabúnaður
- Rafknúin opnun, sjá sjálfvirka rennihurð
- Lás, með eða án sjálfvirkni
- Gluggi (ISO) á hurðir fyrir +0 °C, tvöfalt gler á Industrial
- Hlífar á hurðarblað úr ryðfríu stáli, tígulplötu eða PE
- Kapellukerfi fyrir lofthengda braut
- Toghandfang
- Hvítlakkaður karmur
- Tecnik: tvískipt efri braut
- Industrial: hurðarblað í sérstærð, anodíseraður undirkarmur, tvöföld hurð (tvö blöð sem renna hvort í sína áttina)
Industrial fæst líka sem ósamsett sett, án hurðareininga. Settið er gert fyrir 100 mm sléttar samlokueiningar, +0 °C til -20 °C, og hægt er að opna í hvora áttina sem er. Braut, karmur og hurðarblað fást saman eða hvert fyrir sig.
Kavidoors-hurðir á lömum: kæliklefahurðir og frystiklefahurðir. Rennihurðina má líka para við hraðhurð í tvöföldu hurðakerfi.
Gagnablað Tecnik (PDF) · Gagnablað Industrial (PDF) · Eyðublað fyrir mælingar (PDF)
Hurðin er smíðuð eftir ljósopi. Sendu okkur málin og við gerum tilboð: [email protected], sími 55-20000.
Fáðu verð og afhendingartíma
Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.