KGG – Kristján G. Gíslason ehf 55-20000
Vefverslunin okkar er tímabundið lokuð. Við tökum við pöntunum og fyrirspurnum í síma 55-20000 og á [email protected].
Forsíða › Technoblock kælikerfi › Technoblock ATINV — monoblokk með R-290 og inverter

Technoblock ATINV — monoblokk með R-290 og inverter

Sérpöntun: Technoblock ATINV er pöntuð frá verksmiðju fyrir hverja pöntun og er ekki lagervara. Sendu fyrirspurn eða hringdu í 55-20000 og þú færð verð og afhendingartíma.

ATINV er própan-monoblokkin með inverter. Þjappan hraðar sér og hægir eftir því hvað klefinn þarf, í stað þess að slá inn og út.

Þetta er sama hugmynd og í AT- og ATS-línunum: allt kælikerfið í einni einingu sem sest yfir vegg klefans, með náttúrulega miðlinum R-290 (GWP 3). Munurinn er inverter-snúningsþjappa, sem jafnar hitann í klefanum og nýtir orkuna betur. Fyllingin er að hámarki 150 g á kælirás, svo einingin fellur utan uppsetningartakmarkana sem gilda um eldfima miðla.

Öryggið er innbyggt. Viftumótorar og aflliðar eru ATEX-vottuð og rafmagnskassinn er sjálfslökkvandi og IP56. Ef fylling minnkar eða miðill lekur fara vifturnar sjálfkrafa í gang til að þynna gasið, og þjappan fer ekki í gang.

Tæknilegar upplýsingar

UppsetningMonoblokk, yfirhengd á vegg klefans (form 1 og 2), innanhúss
Hitastig+5/−5 °C kæling · −15/−25 °C frysting
KæliaflKæling 1.123 – 3.079 W · Frysting 584 – 2.363 W
KælimiðillR-290 (própan), GWP 3
Hámarksfylling150 g á kælirás
ÞjappaInverter-snúningsþjappa
ÞenslaRafrænn þensluloki
AfhrímingHeitgas
ÖryggiATEX viftumótorar og aflliðar, IP56 sjálfslökkvandi rafmagnskassi (−25 til +60 °C), sjálfvirk vifturæsing og þjöppulæsing við leka, há- og lágþrýstiliðar
StýringRafeindastýring með stafrænum skjá, klefalýsingarstýringu og aðgreindum viðvörunum
FylgirSameindasía á vökvalögn, vökvaskilja á soglögn, uppgufunarskál með yfirfallsröri, hurðarrofasnúra, hurðarhitasnúra (frysting), klefaljós með LED-peru
Rafmagn230 V / 1 fasa / 50 Hz
Umhverfishiti+10 til +43 °C, innanhúss
AukabúnaðurUpphitaður rafmagnskassi, 60 Hz, vetrarbúnaður (≤ +10 °C), fjarskjár, viðvörunarsnúra, veggfesting
AfhendingSérpöntun, ekki lagervara

Gerðir og afköst

Kæling −5 til +5 °C — afl við 0 °C

GerðFormKæliaflKlefi allt aðHámarksálag
ATTN 100 U INV11.567 W11 m³1,12 kW
ATTN 200 U INV22.460 W23,5 m³3,24 kW

Kæliafl og klefarúmmál miðast við +32 °C umhverfishita og 70 mm einangrun í klefa. Við +5 °C í klefa nær ATTN 200 U INV 3.079 W og 35,8 m³. Tölurnar eru úr gagnablöðum Technoblock.

Frysting — afl við −22 °C

GerðFormKæliaflKlefi allt aðHámarksálag
ATTB 170 U INV1986 W8,7 m³3,24 kW
ATTB 203 U INV21.785 W27,5 m³5,90 kW

Kæliafl og klefarúmmál miðast við +32 °C umhverfishita og 100 mm einangrun í klefa. Tölurnar eru úr gagnablöðum Technoblock.

Afhending

ATINV er pöntuð frá verksmiðju Technoblock á Ítalíu. Sendu okkur stærð klefans, hitastigið og hvar einingin á að sitja, og við staðfestum gerð, afhendingartíma og verð: [email protected] — sími 55-20000.

Sjá einnig ATS og AT, própan-monoblokkir án inverters.

❄️ Opna Technoblock reiknivélina

Fáðu verð og afhendingartíma

Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.