ATS er própan-línan — náttúrulegur miðill með GWP upp á 3.
Lykilatriðið er fyllingarmagnið: hámark 150 g á kælirás. Undir þeim mörkum falla kerfi utan flestra uppsetningartakmarkana sem gilda um eldfima miðla.
Öryggisbúnaðurinn er byggður inn: viftumótorar og aflliði eru ATEX-vottuð, rafmagnskassinn er sjálfslökkvandi og IP56, og sjálfvirkt kerfi ræsir viftur og læsir þjöppunni ef miðill lekur út.
Tæknilegar upplýsingar
| Uppsetning | Innanhúss, sjálfstæð eining |
|---|---|
| Hitastig | +5/−5 °C kæling · −15/−25 °C frysting |
| Kæliafl | Kæling 809 – 2.028 W · Frysting 680 – 1.050 W |
| Klefastærð | Kæling 4 – 20 m³ · Frysting 2,9 – 11 m³ |
| Kælimiðlar | R-290 · R-448A · R-449A · R-452A |
| Hámarksfylling | 150 g á kælirás |
| Öryggi | ATEX viftumótorar og aflliði, IP56 sjálfslökkvandi rafmagnskassi, sjálfvirk vifturæsing og þjöppulæsing við leka |
| Stýring | XM670K rafeindastýring með klefalýsingarstýringu |
| Umhverfishiti | +10 til +43 °C |
Gerðir og afköst
ATS er minnsta própan-línan — sami búnaður og AT en færri gerðir. Frystigerðin ATSTB 170 U er 230V 1-fasa, hámarksálag 1,32 kW og 0,12 kg af R-290.
Kæling −5 til +5 °C — afl við 0 °C
| Gerð | Kæliafl | Klefi allt að |
|---|---|---|
| ATSTN 050 U | 1.093 W | 7 m³ |
| ATSTN 075 U | 1.230 W | 9 m³ |
| ATSTN 100 U | 1.762 W | 14 m³ |
Kæliafl og klefarúmmál miðast við +32 °C umhverfishita við þéttinn og 70 mm einangrun í klefa. Sé vélarrýmið kaldara eykst afkastið; sé einangrunin þykkri dugar sama vél á stærri klefa. Tölurnar eru úr gagnablöðum Technoblock.
Frysting — afl við −22 °C
| Gerð | Kæliafl | Klefi allt að |
|---|---|---|
| ATSTB 170 U | 920 W | 7,5 m³ |
Kæliafl og klefarúmmál miðast við +32 °C umhverfishita við þéttinn og 100 mm einangrun í klefa. Sé vélarrýmið kaldara eykst afkastið; sé einangrunin þykkri dugar sama vél á stærri klefa. Tölurnar eru úr gagnablöðum Technoblock.
Afhending
Þessi lína er pöntuð frá verksmiðju á Ítalíu. Sendu
okkur stærð klefans, hitastigið og hvar einingin á að sitja, og við staðfestum gerð,
afhendingartíma og verð: [email protected] — sími 55-20000.
Sjá einnig splitt-kerfin STX og STZ.
❄️ Opna Technoblock reiknivélina
Fáðu verð og afhendingartíma
Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.