Rafknúin rennihurð fyrir kæli- og frystiklefa frá Kavidoors á Spáni. Mótorinn passar á rennihurðir af öllum stærðum, bæði í kæliklefa (0 °C) og frystiklefa (-20 °C). Kavidoors mælir með sjálfvirkni þar sem mikið er flutt inn og út, til dæmis í dreifingarmiðstöðvum og kjötvinnslu.
Búnaðurinn er CE-merktur og vottaður samkvæmt UNE-EN 13241-1 og DIN EN 12978. Hann kemur forritaður, og ef rafmagnið fer er auðvelt að opna hurðina með höndunum.
Tæknilegar upplýsingar
- Mótor: 0,55 kW
- Hraði: 0,7 m/s við opnun og lokun
- Hitaþol stjórnbúnaðar: niður í -35 °C
- Endastopp: með algildum kóðara (absolute encoder)
- Varnir: hitavörn í mótorvafningi, neyðaropnun og bakkvirkni
- Hús: steypt ál, með lagskiptum öxli og tvöföldum legum
- Mótorhlíf: ryðfrítt stál, hægt að opna
- Lítið viðhald og hannað fyrir iðnaðarumhverfi
Opnun
Hurðin getur opnast með hnappi, togrofa, segullykkju í gólfi, ljósnema, radar eða fjarstýringu. Radar, togrofi og segullykkja fást öðrum megin eða báðum megin. Einnig er hægt að fá tíðnibreyti og forritaða opnun.
Hurðin sjálf
Sjálfvirknin er sett á sömu rennihurðir og fást handvirkar, Tecnik eða Industrial, með tvöfaldri braut og einkaleyfisvörðu öryggiskerfi sem kemur í veg fyrir að hurðin falli eða velti. Tecnik er með 80 mm (+0 °C) eða 100 mm (-20 °C) hurðarblaði og ljósop allt að 2,5 × 2,8 m. Industrial er með 100–150 mm hurðarblaði og ljósop allt að 4 × 6 m (mest 12 m²). Karmur, klæðning og málsetning eru eins og á handvirku rennihurðinni.
Velja þarf hvorum megin mótorinn situr, vinstra eða hægra megin við opið. Lás fæst fyrir sjálfvirkar hurðir.
Þar sem umferðin er mikil hluta dagsins má para rennihurðina við hraðhurð í tvöföldu hurðakerfi.
Gagnablað um sjálfvirkni (PDF) · Gagnablað Tecnik (PDF) · Gagnablað Industrial (PDF) · Eyðublað fyrir mælingar (PDF)
Hurðin er smíðuð eftir ljósopi. Sendu okkur málin og við gerum tilboð: [email protected], sími 55-20000.
Fáðu verð og afhendingartíma
Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.