KGG – Kristján G. Gíslason ehf 55-20000
Vefverslunin okkar er tímabundið lokuð. Við tökum við pöntunum og fyrirspurnum í síma 55-20000 og á [email protected].
Forsíða › Ammoníak varahlutir › Tychem 6000F hlífðargalli fyrir ammoníak

Tychem 6000F hlífðargalli fyrir ammoníak

Tychem 6000F hlífðargalli fyrir ammoníak

Tychem 6000F – hlífðargalli fyrir skoðun og stutt verk við ammoníak

Sérpöntun: Varan er sérpöntuð og ekki geymd á lager hjá KGG. Hafðu samband í síma 55-20000 eða sendu fyrirspurn og við gefum þér verð og afhendingartíma.

Þegar það þarf að herða flans, skoða minni leka eða fara inn í vélarýmið eftir viðvörun þarf að vernda húðina líka. Tychem 6000F er einnota hlífðargalli með áföstum skóm og hönskum, gerður til að nota með heilgrímu. Hann hentar vel fyrir skoðun og stutt verk við ammoníakkerfi.

Eiginleikar

  • Þolir staðbundna ammoníakmengun í um 15–20 mínútur
  • Áfastir skór og hanskar
  • Einnota
  • Til í stærðum L, XL og 2XL
  • Notaður með heilgrímu með stífri umgjörð

Lýsing

Rétt gríma skiptir máli

Til að gallinn þétti vel að andlitinu þarf heilgrímu með stífri umgjörð um glerið. Sumar heilgrímur eru með mjúkri umgjörð, og þá getur gúmmíþéttingin legið illa að opi gallans. Mælt er með því að nota aðeins heilgrímur með stífri umgjörð.

Hagnýt atriði

Rennilásinn er á bakinu og því þarf aðstoð við að loka gallanum. Til að fá betra grip og aukna vörn er gott að vera í öðrum hönskum yfir þeim sem eru fastir við gallann.

Notkun og svið

Tychem 6000F hentar fyrir skoðun við minni leka og viðhald á flanstengingum í ammoníakkerfum, til dæmis í frystihúsum, fiskvinnslum og kæligeymslum.

Mikilvægt: Gallinn er ekki 100% gasþéttur yfir lengri tíma og ekki er hægt að setja yfirþrýsting í hann. Við stærri leka þarf ferskloftsbúnað og lokaðan yfirþrýstingsgalla.

Tæknigögn

LýsingGildiEining
FramleiðandiDuPont
GerðEinnota hlífðargalli
Þol gegn staðbundinni ammoníakmengunu.þ.b. 15–20mín.
Skór og hanskarÁfastir
RennilásÁ baki
YfirþrýstingurNei
StærðirL / XL / 2XL
AfhendingSérpöntun, ekki lagervara

Skrár

Fáðu verð og afhendingartíma

Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.