KGG – Kristján G. Gíslason ehf 55-20000
Vefverslunin okkar er tímabundið lokuð. Við tökum við pöntunum og fyrirspurnum í síma 55-20000 og á [email protected].
Forsíða › Technoblock kælikerfi › Technoblock US / USQ — hljóðeinangruð þéttieining

Technoblock US / USQ — hljóðeinangruð þéttieining

US-línan er með hljóðeinangrað þjöpphólf.

Það munar mest þar sem einingin stendur nálægt fólki: við bakdyr á veitingastað, í porti í íbúðabyggð eða þar sem hávaðamörk eru sett í starfsleyfi. Þjappan situr í einangruðu hólfi en þéttirinn er áfram með fullri loftræstingu.

Munurinn á US og USQ er rafbúnaðurinn: US er með einföldum tengiklemmum, en USQ kemur með rafmagnstöflu, aðalrofa, varliðum og þjöppuliða — tilbúið til tengingar.

Tæknilegar upplýsingar

Uppsetning Á gólfi, hentar úti
Hitastig +5/−5 °C kæling · −18/−25 °C frysting
Kæliafl 1.000 – 9.400 W
Kælimiðlar R-448A · R-449A · R-452A
Hljóðvist Hljóðeinangrað þjöpphólf
Rafbúnaður US: tengiklemmur · USQ: rafmagnstafla með aðalrofa, varliðum og þjöppuliða
Búnaður Sveifarhúshitari, 6-póla þéttiviftumótor, vökvasafnari með síu og sjónglasi

Afhending

Þessi lína er pöntuð frá verksmiðju á Ítalíu. Sendu
okkur stærð klefans, hitastigið og hvar einingin á að sitja, og við staðfestum gerð,
afhendingartíma og verð: [email protected] — sími 55-20000.

Sjá einnig splitt-kerfin STX og STZ.

❄️ Opna Technoblock reiknivélina

Fáðu verð og afhendingartíma

Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.