UI er stærsta þéttieiningalínan — upp í 113 kW.
Hún nær yfir allt frá miðlungs kæliklefa upp í frystigeymslur og vinnslurými, og er líka fáanleg sem hraðfrystieining niður í −45 °C og sem fjölhitaeining sem þjónar bæði kæli- og frystihitastigi.
Stærri gerðirnar eru með lyftaragrindum í undirstöðunni, sem skiptir máli þegar einingin þarf að komast á þak eða upp á pall.
Tæknilegar upplýsingar
| Uppsetning | Á gólfi utan klefa, veðurhlíf fylgir |
|---|---|
| Hitastig | +5/−5 · −18/−25 · fjölhita · −35/−45 °C |
| Kæliafl | 1.500 – 113.000 W |
| Kælimiðlar | R-448A · R-449A · R-452A |
| Þjöppur | Allar með sveifarhúshitara |
| Öryggi | Stillanlegir þrýstiliðar, vökvasafnari með öryggisloka |
| Stýring | Þéttiviftustýring uppfæranleg í rafeindastýrðan hraðabreyti |
| Flutningur | Lyftaragrindur á stærri gerðum |
| Tengingar | Lóðningarlausar tengingar að eimara |
Afhending
Þessi lína er pöntuð frá verksmiðju á Ítalíu. Sendu
okkur stærð klefans, hitastigið og hvar einingin á að sitja, og við staðfestum gerð,
afhendingartíma og verð: [email protected] — sími 55-20000.
Sjá einnig splitt-kerfin STX og STZ.
❄️ Opna Technoblock reiknivélina
Fáðu verð og afhendingartíma
Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.