TI er línan þegar klefinn er orðinn að geymslu — ekki skáp.
Hún nær frá 10 rúmmetrum upp í 1.600 og frá einu kílóvatti upp í 53. Þar með er hún komin í sama stærðarflokk og skipt kerfi, en heldur kostinum við monoblokkinn: ein eining, engin rörlögn milli hluta og engin lóðun á staðnum.
TI er eina línan sem er líka fáanleg sem hraðfrystir niður í −45 °C, og sem fjölnota eining sem má skipta á milli kæli- og frystihitastigs — gagnlegt í rými sem breytir um hlutverk eftir vertíð.
Tæknilegar upplýsingar
| Uppsetning | Veggfest, stór eining |
|---|---|
| Hitastig | +15/+5 · +5/−5 · −18/−25 · fjölnota · −25/−45 °C |
| Kæliafl | 1.000 – 53.000 W |
| Klefastærð | 10 – 1.600 m³ |
| Kælimiðlar | R-404A · R-448A · R-449A · R-452A |
| Þensla | Hitastýrður þensluloki (TX-loki) |
| Þjöppur | Allar með sveifarhúshitara |
| Öryggi | Stillanlegir þrýstiliðar skv. ESB 2014/68/ESB, öryggisloki |
| Stýring | Rafeindastýring með viðvörun, fjarstýriborð á 5 m snúru |
Afhending
Þessi lína er pöntuð frá verksmiðju á Ítalíu. Sendu
okkur stærð klefans, hitastigið og hvar einingin á að sitja, og við staðfestum gerð,
afhendingartíma og verð: [email protected] — sími 55-20000.
Sjá einnig splitt-kerfin STX og STZ.
❄️ Opna Technoblock reiknivélina
Fáðu verð og afhendingartíma
Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.