KGG – Kristján G. Gíslason ehf 55-20000
Vefverslunin okkar er tímabundið lokuð. Við tökum við pöntunum og fyrirspurnum í síma 55-20000 og á [email protected].
Forsíða › Technoblock kælikerfi › Technoblock AT — monoblokk með R-455A (lágt GWP)

Technoblock AT — monoblokk með R-455A (lágt GWP)

AT er línan fyrir þá sem vilja ekki byggja nýtt kerfi á miðli sem verður kvótasettur út.

F-gas reglugerðin þrengir jafnt og þétt að miðlum með hátt GWP. AT er hönnuð fyrir R-455A — A2L blöndu með lágt GWP — og er einnig fáanleg með própani (R-290) eða hefðbundnu miðlunum ef það hentar betur.

Tæknilegar upplýsingar

Uppsetning Monoblokk — sjálfstæð eining
Hitastig +5/−5 °C kæling · −18/−25 °C frysting
Kæliafl Kæling 809 – 4.771 W · Frysting 480 – 3.010 W
Klefastærð 4 – 87 m³
Kælimiðlar R-455A (aðal) · R-290 · R-452A · R-448A · R-449A
Öryggi Sameindasía, há- og lágþrýstiliðar, vökvaskilja á soglögn
Fylgir LED klefalýsing (5 m snúra), hurðarrofasnúra
Þéttivatn Uppgufunarskál með yfirfallsröri og hitavír

Athugið

R-455A er A2L — lítillega eldfimur miðill — sem setur kröfur um uppsetningarstað og lekaskynjun. Við förum yfir þær kröfur áður en pantað er.

Gerðir og afköst

Taflan hér að neðan á við R-290 útfærsluna (própan, GWP 3) samkvæmt gagnablaði Technoblock frá 2024. Hámarksáfylling er 150 g á hverja kælirás, sem þýðir að einingarnar falla utan flestra uppsetningartakmarkana sem gilda um eldfima miðla. R-455A útfærslan er sambærileg að afli — við staðfestum nákvæmar tölur fyrir hana við pöntun.

Kæling −5 til +5 °C — afl við 0 °C

Gerð Kæliafl Klefi allt að
ATTN 050 U 1.093 W 7 m³
ATTN 075 U 1.230 W 9 m³
ATTN 100 U 1.762 W 14 m³
ATTN 110 U 1.910 W 14,8 m³
ATTN 120 U 2.127 W 20 m³
ATTN 150 U 2.507 W 24 m³
ATTN 180 U 3.032 W 30 m³
ATTN 200 U 3.480 W 34 m³
ATTN 210 U 3.630 W 35,8 m³
ATTN 250 U 4.200 W 66 m³

Kæliafl og klefarúmmál miðast við +32 °C umhverfishita við þéttinn og 70 mm einangrun í klefa. Sé vélarrýmið kaldara eykst afkastið; sé einangrunin þykkri dugar sama vél á stærri klefa. Tölurnar eru úr gagnablöðum Technoblock.

Frysting — afl við −22 °C

Gerð Kæliafl Klefi allt að
ATTB 110 U 621 W 4,4 m³
ATTB 120 U 710 W 5 m³
ATTB 170 U 920 W 7,5 m³
ATTB 180 U 1.010 W 9 m³
ATTB 201 U 1.207 W 11,4 m³
ATTB 202 U 1.470 W 17 m³
ATTB 203 U 1.510 W 19 m³
ATTB 220 U 1.950 W 26,7 m³
ATTB 430 U 2.514 W 37,5 m³

Kæliafl og klefarúmmál miðast við +32 °C umhverfishita við þéttinn og 100 mm einangrun í klefa. Sé vélarrýmið kaldara eykst afkastið; sé einangrunin þykkri dugar sama vél á stærri klefa. Tölurnar eru úr gagnablöðum Technoblock.

Afhending

Þessi lína er pöntuð frá verksmiðju á Ítalíu. Sendu
okkur stærð klefans, hitastigið og hvar einingin á að sitja, og við staðfestum gerð,
afhendingartíma og verð: [email protected] — sími 55-20000.

Sjá einnig splitt-kerfin STX og STZ.

❄️ Opna Technoblock reiknivélina

Fáðu verð og afhendingartíma

Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.