Sökklar frá Kavidoors sem verja veggi og klefaeiningar neðst við gólfið. Þeir eru úr óbrjótanlegu háþéttni pólýetýleni (HDPE), sem er vatnshelt, ekki gljúpt og auðvelt að þrífa. Sökklarnir hlífa líka neðri hluta hurða fyrir hnjaski við þrif og umferð.
Tæknilegar upplýsingar
- Efni: háþéttni pólýetýlen (HDPE)
- Lengd: 2.000 mm
- Hæðir: 150, 210, 300, 500 og 1.000 mm
- Þykkt: 20 mm, fótur 40 mm
- Kerfi: tveggja hluta, fest bæði í gólf og vegg
- Skrúfur: faldar, svo ekkert standi út inni í rýminu
- Horn: innhorn og úthorn, 150 × 150 mm
Sjá líka hvelfda hreinlætislista og PVC-klæðningu.
Gagnablað frá framleiðanda (PDF)
Sendu okkur málin og við gerum tilboð: [email protected], sími 55-20000.
Fáðu verð og afhendingartíma
Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.