KGG – Kristján G. Gíslason ehf 55-20000
Vefverslunin okkar er tímabundið lokuð. Við tökum við pöntunum og fyrirspurnum í síma 55-20000 og á [email protected].
Forsíða › Hurðir fyrir kæli- og frystiklefa › Eldvarnarhurð fyrir kæli og frysti frá Infraca (iFire)

Eldvarnarhurð fyrir kæli og frysti frá Infraca (iFire)

Eldvarnarhurð fyrir kæli og frysti frá Infraca (iFire)

Eldvarnarhurðir frá Infraca á Spáni: einangraðar iFire-hurðir fyrir kæli- og frystiklefa og almenn eldvarnarhurð á lömum. iFire-hurðirnar sameina kæliklefahurð og eldvarnarhurð í einni. Þær eru fyrir klefa við +0 °C og -20 °C og fást sem rennihurð (EI2-60) eða hurð á lömum (EI2-90). Framleiðandinn nefnir matvælaiðnað, vörumiðstöðvar, bílaiðnað og lyfjaiðnað.

iFire EI2-60 rennihurð

  • Brunaflokkur: EI2-60 flokkur B. 60 mínútur frá báðum hliðum og 120 mínútur frá annarri
  • Prófun: prófuð samkvæmt EN 1634-1 og flokkuð samkvæmt EN 13501-2
  • Þykkt hurðarblaðs: 120 mm við +0 °C, 130 mm við -20 °C
  • Hámarks ljósop: 2,5 m breidd × 3 m hæð. Aðrar stærðir eftir fyrirspurn
  • Karmur: tvöfaldur. Kæliklefakarmur úr L-laga álprófílum með tvöföldu kuldabroti og hólfi fyrir hitastreng, og RF-karmur úr lökkuðu stálröri sem er límdur við hann
  • Kjarni: gifsplötur, steinull og plötur með mikið einangrunargildi (λ = 0,01 W/mK)
  • Þétting: eldþolnir þéttilistar sem þenjast allt að tuttugufalt út í hita, og sérstakir þéttilistar sem halda þéttni í frosti
  • Lokun: opnuð og lokað með handafli. Lokast sjálfkrafa með stýrðum hraða þegar merki kemur frá brunaboða, reykskynjara eða brunaviðvörunarkerfi (sá búnaður fylgir ekki). Gormatalía, engin mótvægi
  • Klæðning: ryðfrítt stál AISI 304/2B eða hvítlakkað stál

Málsetning: uppsetningarop = ljósop + 100 mm á breidd og + 50 mm á hæð. Heildarbreidd = 2 × ljósop + 1055 mm, breidd brautar = 2 × ljósop + 785 mm. Gróp í gólf er 50 mm djúp og ljósop + 500 mm á lengd. Hurðin fæst líka án sjálfvirkrar lokunar.

iFire EI2-90 hurð á lömum

  • Brunaflokkur: EI2-90 flokkur B. 90 mínútur frá báðum hliðum og 120 mínútur frá annarri
  • Prófun: prófuð samkvæmt EN 1634-1 og flokkuð samkvæmt EN 13501-2
  • Þykkt hurðarblaðs: 100 mm
  • Hámarks ljósop: 1,2 m breidd × 2,4 m hæð. Aðrar stærðir eftir fyrirspurn
  • Karmur: úr ryðfríu stáli 304 með kuldabroti, skrúfur faldar að utan
  • Kjarni: steinefnablandað efni sem þolir hitasveiflur og einangrar vel við bæði hátt og lágt hitastig (λ = 0,005 W/mK)
  • Þétting: þrefaldur eldþolinn þéttilisti og samþrykktur þéttilisti sem heldur þéttni í frosti
  • Búnaður: lamir úr ryðfríu stáli með lyftirampa, þriggja punkta lokun, handfang frá Infraca með kuldabroti og innra handfang úr ryðfríu stáli
  • Engar sýnilegar skrúfur eða hnoð, ryðfrí horn á hurðarblaði

Málsetning: breidd karms = ljósop + 356 mm, hæð karms = ljósop + 178 mm, uppsetningarop = ljósop + 90 mm á breidd.

Eldvarnarhurð á lömum

Gönguhurð fyrir inni- eða útinotkun þar sem krafa er um brunavarnir og flóttaleiðir.

  • Hurðarblað: 60 mm, klætt stálplötu 0,6 eða 0,8 mm sem er grunnuð, lökkuð eða galvaniseruð
  • Karmur: Z-prófíll eða veggfesting með eldþolnum kantþéttilista
  • Hámarks ljósop: 2 m × 2 m
  • Útlit: hvít sem staðalbúnaður, aðrir litir fást. Hægt að klæða með PVC með viðaráferð eða skrautfilmu
  • Aukabúnaður: panic-slá, gluggar, lokunarröðun, hurðarpumpur, rafseglar og handföng

Fleiri gerðir af eldvarnarhurðum, eldvarnartjöld og -rúllur frá Kavidoors eru á síðunni eldvarnarhurðir. Venjulegar kæli- og frystihurðir frá Infraca eru á síðunum rennihurðir og hurðir á lömum.

Gagnablað iFire EI2-60 (PDF) · Gagnablað iFire EI2-90 (PDF) · Gagnablað eldvarnarhurðar á lömum (PDF)

Hurðirnar eru smíðaðar eftir ljósopi. Sendu okkur málin og við gerum tilboð: [email protected], sími 55-20000.

Fáðu verð og afhendingartíma

Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.