Danfoss ICF EVRAT – lokastöð sem kemur í stað EVRA/T 10–20
Sérpöntun: Varan er sérpöntuð og ekki geymd á lager hjá KGG. Hafðu samband í síma 55-20000 eða sendu fyrirspurn og við gefum þér verð og afhendingartíma.
Danfoss er hætt að framleiða EVRA/T 10–20 segullokann, sem situr í fjölda ammoníakkerfa. Góðu fréttirnar eru að ICF EVRAT lokastöðin hefur sömu smíðamál og gamla samsetningin EVRA með FA síu. Hún passar því í sömu flansa og skiptin eru einföld. Í einu húsi eru segulloki og sía, og færri samskeyti þýða færri staði þar sem getur lekið.
Eiginleikar
- Kemur í stað EVRA/T 10–20 sem er hættur
- Sömu smíðamál og EVRA með FA síu og passar í sömu flansa
- Segulloki og sía í einni einingu
- Með flansa, DN 15 eða DN 20
Lýsing
Ef EVRA/T situr með FA síu
Þá er einfaldlega skipt. ICF EVRAT fer í sömu flansa og gamla samsetningin.
Ef EVRA/T situr stakur
Þá er annar flansinn skorinn af og færður á nýjan suðustað svo ICF EVRAT passi. Einnig má skera báða flansana af og sjóða ICF 20 beint inn í lögnina.
ICF lokastöðvar
ICF er lokastöðvalína frá Danfoss þar sem nokkrir lokar eru byggðir í eitt hús, til dæmis lokunarloki, sía, segulloki, handopnun og stilliloki. Fleiri samsetningar fást fyrir vökvalagnir og heitgas. Sendu okkur upplýsingar um kerfið og við finnum réttu samsetninguna.
Notkun og svið
ICF EVRAT er notaður þar sem EVRA/T 10–20 var áður í ammoníakkerfum, til dæmis í vökvalögnum að eimum í frystihúsum, kæligeymslum og fiskvinnslum. Spólan er pöntuð sér.
Tæknigögn
| Lýsing | Gildi | Eining |
|---|---|---|
| Framleiðandi | Danfoss | |
| Kælimiðill | Ammoníak (R717) | |
| Stærðir | DN 15 / DN 20 | |
| Tenging | Flansar | |
| Kemur í stað | EVRA/T 10–20 með FA síu | |
| Afhending | Sérpöntun, ekki lagervara |
Fáðu verð og afhendingartíma
Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.