Aukahlutir frá Infraca á Spáni fyrir kæli- og frystiklefa og hurðir í þá. Hér eru þrýstijafnari, upphengjur fyrir lofteiningar, prófílar, sýningargluggi og úrtök í hurðir fyrir loftbrautarkerfi.
Þrýstijafnari
Ventill sem jafnar þrýsting milli klefans og umhverfisins með því að hleypa lofti í gegn. Hann vinnur vélrænt með tveimur loftþéttum himnum, einni fyrir innstreymi og annarri fyrir útstreymi, og opnar við þrýsting sem samsvarar 10 mm vatnssúlu. Í honum er hitaelement.
Fjöldi ventla ræðst af rúmmáli klefans, hitastigi í honum og því hve hratt hitinn breytist. Reikniregla framleiðandans er í aukahlutaskránni hér að neðan.
Upphengjur fyrir lofteiningar
- Til að hengja upp lofteiningar í kæli- og frystiklefum
- Prófíll úr hvítlökkuðu áli, 6 m langur. Má saga styttri fyrir flutning sé þess óskað
- Fyrir M10 ró og snittteina, mælt er með breiðum skífum
- Stífari en prófílar úr PVC eða trefjaplasti og þarf ekki að bora fyrir snittteinum
- Teinninn rennur til inni í prófílnum, svo hann er færður á réttan stað áður en hann er festur við burðarvirkið
Prófílar
- Vinklar og prófílar með L-, U-, Z- og I-sniði til uppsetningar á klefaeiningum og hurðum
- 3 m lengdir, með eða án brotins kants
- Venjulega úr 0,6 mm lökkuðu stáli, en fást einnig úr ryðfríu stáli í mismunandi þykkt eða PVC
- Koma með hlífðarfilmu svo þeir skemmist ekki fyrir uppsetningu
Sýningargluggi
Gluggi í vegg til að fylgjast með því sem fram fer í vinnslurými, fyrir rými yfir 0 °C.
- Hámarksstærð: 2 × 2 m, mest 2 m² að flatarmáli
- Rammi: karmur og undirkarmur úr hvítlökkuðu áli með tvöföldu kuldabroti, laga sig að einingum eða vegg af hvaða þykkt sem er
- Gler: Climalit® 5/14/6. Einnig fæst lagskipt 3+3/12/3+3 gler, 5 mm akrýl eða rammi án glers
- Málsetning: uppsetningarop = sjónop + 80 mm, heildarmál = sjónop + 160 mm, bæði á breidd og hæð
Hurðir fyrir loftbrautarkerfi
Infraca smíðar rennihurðir, hurðir á lömum og Flip Flap vængjahurðir fyrir klefa yfir 0 °C með úrtaki fyrir lofthengda braut. Úrtakið er haft eins lítið og hægt er og sveigjanlegir PVC-strimlar loka fyrir loftstreymi þar sem brautin fer í gegn.
- Venjulegt úrtak: mest notað í kjötiðnaði, sláturhúsum, kjötvinnslum og þurrkklefum, og hvar sem brautarkerfi er
- Svanaháls (franskt úrtak): notað þegar brautin liggur hærra
- Hægt að fá bæði úrtökin í stórar hurðir, jafnt í nýjar og eldri byggingar
Úrtak fyrir loftbraut fæst meðal annars í Flip Flap vængjahurð og rennandi þjónustuhurð frá Infraca.
Aukahlutaskrá Infraca (PDF)
Gagnablað: sýningargluggi (PDF)
Gagnablað: hurðir fyrir loftbrautarkerfi (PDF)
Sendu okkur upplýsingar um klefann og við gerum tilboð: [email protected], sími 55-20000.
Fáðu verð og afhendingartíma
Vefverslunin er tímabundið lokuð. Hringdu eða sendu okkur línu og við svörum fljótt.